kif we have a conundrum

Eh eh eee

31.08.2007 22:02:58 / helga

NÝ SÍÐA

HÆ ALLIR ER AÐ SKIFA NÝJA FÆRSLU EN HÚN VERÐUR VÍST EKKI Á ÞESSARI SÍÐU, ÞVÍ ÉG VAR AÐ FÁ MÉR NÝJA. ÞAR ER ÞEGAR KOMINN NÝ MYNDASÍÐA MEÐ ÖLLU SEM ÉG GERÐI Í SUMAR :):):):

NÝJA SÍÐAN MÍN ER

 

http://sigurveig.wordpress.com/ 

 

ENDILEGA KÍKIÐ Á HANA :):):) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 22:04:41 / helga

Myndir

nýjar myndir úr ferðalöfum.....

hér fyrir neðan ,veiðivötn og þjórsárdalur 

stolið af síðunni hans Emils


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 20:23:33 / helga

kominn heim og í góðum gír

Jæja það er víst kominn vika síðan ég var á Mallorca og er þá kominn tími á smá blogg.

Ég fór að vinna á miðvikudeginum eftir ferðina og var það bara ágætt, allir að segja að maður sé svo brúnn heheh.

En ég var bara vinnandi og vinnandi þar til á föstudaginn. Þá var bara andað rólega og slappað smá af því ég og Emil ætluðum okkur að fara í ferðalag á Laugardeginum. 

Laugardagur:

Vaknað og tekið til ferða föt og tjald, svo var brunað á selfoss þar sem ég og Emil kíktum á ma og pa þar sem þau voru í sumarbústaðnum, eftir stutt og gott stopp var brunað beinustu leið upp í Þjórárdal. Kíktum við á aðstæður og skunduðum svo í sundlaug sem var búinn til úr afgangs steipu úr Búrfellsvirkjun. Er þetta bara rosa góð laug verð ég að segja við vorum allaveganna í 2 tíma þarna ofaní að sóla okkur og náði ég að brenna mig á kinnunun hehehe. Svo var farið aftur í þjórsárdal að tjalda og borðað. Þarna var fullt af fólki, var drukkið langt fram á nótt og stemmingin var í hámarki.

Sunnudagur:

Ég vaknaði og var að deyja það var svo heitt inni í tjaldinu ég rauk út og náði andanum en þá komu mýflugurnar og gerðu mér glaðan dag. En þær voru ágætar krúttin eða þannig. Hehehehehe  svona um 1 eða 2 leitið var brunað á Flúðir þar sem við fórum í sund. Svo var farið í konfekt og kaffi í Breiðási hjá Ömmu og Ámunda og auðvitað var kíkt í fjósið í Hrepphólum til að kíkja á krúsidúllu kálfana sem ég vildi taka með mér heim en þeir komust ekki í bílinn.

Svo var skundað aftur í sumarbústaðinn þar sem beið okkar þessi dýrindis grillveisla.

Þetta var nú helginn hjá mér og njótið hehehe.

Fer bráðum að setja myndir frá mallorca og tjaldferðinni inn þegar ég nenni bæ í bili.


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 19:47:42 / helga

á mallaranum

Hellú allir saman. atladi bara ad lata ykkur vita af dví ad ég er á Mallorca í mega gír.

í dag var ég í rennibrautagardi og dad var geggjad. mér leid eins og ég vari 12 ára hehehehe.

 en planid hjá mér er ad fara í meyra sólbad og njóta vedursinns dar sem dad er bara sól og meyri sól :):):):):):):):):)

kem aftur á klakann 18 síja


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 10:37:26 / helga

Sól og sumar

Jæja jæja þá ætla ég að setja inn smá blogg. Þar sem ég er að fara til Mallorca í dag. Flugið átti að fara kl 14:55 en það var víst smá seinkunn þannig að það fer ekki fyrr en kl 17:20 mega stuð þar.

En það sem er að frétta af mér er það að ég fékk gat á hausinn 26 maí á Sólon og var það alveg massíft stuð. Fékk far með löggunni upp á fossvog og þar kíkti læknirinn á hausinn á mér og það var allt í gúddý. Það þurfti ekki að sauma sem var mjög gott.

En annars er ég bara búin að vera hanga með honum Emil. Þar sem hann kom á klakann síðasta þriðjudag. Í gær var svo sjómannadagurinn og þá kíktum við í bæinn til að sjá lífið. Ég var klædd eins og ég væri að fara á ströndina en það var rok og rigning sem er ekki alveg það sama og ströndin. En það reddaðist alveg þegar ég fékk kakóbollan minn hehehehehe.

Svo var skellt sér í skífuna til að kaupa miða á tónleika með The Rapture sem verður GEGGJAÐ!!!!

En ég veit ekki hvað ég á að segja meira nema ég er að fara í sólina og það er Ógeðslegt veður hérna heim heheheheh eða kannski MÚHAHAHAHAHA

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 22:01:49 / helga

Baldur búinn að útskrifast

Jæja jæja pæja

Þá er þessi dagur að enda eða svona næstum og er hann búinn að vera mjög góður.

Byrjaði á að fara í vinnuna kl 8 og svo var ég búinn í vinnuni kl 2 því þá var kominn tími til að skella sér í spari fötin því Baldur stóri bró var að útskrifast ekki meyra né minna.

Við vorum kominn um 4 í kirkjuna og var hún að troð fyllast en þá byrjaði ballið.

Þarna voru trilljón manns að útskrifast og tók þetta svona pínu langan tíma en það var mega stuð þegar Baldur fór upp. Þannig að ég ætla mér að gera smá mynda blogg.

 

Baldur að fá skjalið sitt.

Kominn með húfuna :)

mættur með konuna

þórunn kjútí í útskriftinni

 

þórunn kominn á Ask að borða vaxliti

 

svo fékk hún smá eftir rétt  

og hann var góður

 

 

TIl Hamingju Baldur  


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 01:57:51 / helga

Njallarinn var geggjaður

Jójójó hvað er upp???????

Ég fór semsagt í gær á selfoss og tók með mér hana Steffí frænku. Við skunduðum á Selfoss og hittum þar hana Önnu Björk og kærastan hennar.  Þar sem við Steffí vorum að deyja úr hungri og pöntuðum við okkur nokkrar pizzur Og þær voru 3!!!!

Þegar við vorum öll búinn að eta á okkur gat fórum við að sötra á víninu okkar.

Svo ég segi nú frá, þá var ekki áætlunin að vera á selfossi heldu vorum við á leiðinni á ball í Njálsbúð á Hvolsvelli. Þegar við vorum nú loksins reddí vorum við keyrðar eins og bestu hefðar dömur í einhverjum sportbíl á svæðið. Þar sem við vorum nú á Selfossi hehe

Þegar komið var á staðinn þutum við inn og var allt morandi í litlum gelgjum og voru  alveg blind fullar reyndar líka strákarnir. Þá var bara planið að drekka meyra svo þær hættu að vera svona miklar gelgjur. Og viti menn ég náði því hehehehehe. Það tók smá á þar sem við máttum bara fara með 1 bjór inn í einu og ég var með litlar dósir. Þannig að ég var alltaf að vara inn og út. Sem betur fer var ekki alveg ískalt þannig að ég fékk ekki kvef í dag  vú hú.

En ballið var búið um 2 eða 3 sem var fínn tími því við mættum kl 10. þá var bara að skella sér aftur á selfoss. Ferðin þangað var mjög stutt fyrir mig þar sem ég gjörsamlega steinsofnaði í bílnum hehhehehe. Það var mjög þægilegt allaveganna fyrir mig hehehe.við Stefanía tókum svolítið á því á dansgólfinu þar kom þreytan hehehehehe.

Við Steffí fórum svo bara heim um 2 leitið í dag sem er laugardagur.  

Svo er ég bara búinn að vera heima í dag. Þórunn Emilía kom í pössun um 3 leitið og erum við búnar að leika alveg fullt. Ég fékk að svæfa litla krúttið en það var ekki alveg að gera sig. Hún lá hérna í rúminu mínu og fann rofann á veggljósinu mínu og þar sem hún er takka óð. Var hún allan tíman að kveikja og slökkva á ljósinu þangað til mamma kom og tók hana inn til sín eheheheheh þar var ekkert mál að sofna.

En ég er alveg að sofna hérna og ætla mér bara að fara að sofna nema hann Baldur brói hringi í mig og biður um skutl  heim úr bænum. Þar sem þessi blessaða leigubíla röð er oftast til vandræða össssssssss.

ætla mér að setja myndir af ballinu inn á morgunn nenni því ekki núna. Síja baby’s.


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 20:23:03 / helga

prófinn að klárast

Jæja jæja jæja.

Þá á ég bara eitt próf eftir og það er á morgunn. Þá er ég loksins búinn og þá fer ég bara beint að vinna og vinna og vinna og vinna og svo fer ég til útlanda og fer í sólbað og sólbað og sólbað. Bara svona að láta ykkur vita hvað planið er hjá mér.

En það er svo sem ekki mikið að gerast er bara búinn að vera að læra og svo var auðvitað eurovision um helgina og var öll þjóðin í sjokki að við komumst ekki áfram hehehhe það kom mér nú ekkert það mikið á óvart þar sem við höfum ekki komist áfram síðustu 3 árinn hehehehehe. Og svo kom Trukkalessan og vann þetta bara með glæsibrag. Vann undanúrslitinn og svo bara keppnina sjálfa. ekki slæmt.

En við vorum í 13 sæti í keppninni held að það sé sama sæti og síðast.

Það er nú ekki mikið annað að gerast hjá mér í augnablikinu þannig að ég segi bara Adios.....

 

ætla að bæta pínu við þessa færslu, um helgina var semsagt einhver listahátíð hérna í bæ og fór ég með honum Baldri og Þórunni Emilíu að tékka á þessu og þetta var mega sega flott.

Þórunn sætasta í heimi

hérna eru nokkrar myndir af þessum atburði.

Dúkkan stóra

 

 lista verk eftir risan. náði ekki betri mynd hehe 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 23:48:32 / helga

Próf og allt að gerast

Jæja góði hálsar  hérna ætla ég mér að blogga smá bút.

Það er nú lítið að gerast hjá mér er í prófum núna alveg uppáhalds tími ársins. Á eftir að fara í 2 próf eitt á miðvikudaginn og hitt næsta mánudag.

Svo rétt áðan var ég að skoða slúðrið á mbl.is sem ég geri nú daglega ( verður að vera með í umræðum um frægafólkið hehe) og þar sá ég glitta í frétt um þáttin LOST.

 

Þar sem ég er nú mikill aðdáandi af þessum blessaða þætti og hef nú horft á alla þættina sem hafa verið sýndir hérna á klakanum fannst mér nú tilvalið að tékka á þessari frétt.

En þetta var ekki mjög góð gleði frétt. Þar sem ég er orðin frekar spennt yfir endalokum á þessum þætti. Þá á að gera 3 nýjar seríur í viðbót, sem þíðir bara eitt ÞESSI ÞÁTTUR MUN ALDREY ENDA!!!!!!!! Síðasti þátturinn verður ekki sýndur fyrr enn 2010!!!!!!!

Ok þá verð ég bara að horfa á Lost næstu 3 árinn össssssss

Svo er Mallorca að nálgast það munu vera 28 dagar í þennan mega atburð. Hlakka smá til í að vera aðeins minna hvít.

 

Stefnan er að liggja á ströndinni fá mér smá drykk liggja aðeins meyra á ströndinni hehehehe

En núna ætla ég að fara að sofa eða kannski bara horfa á tv held það sé góð hugmynd.  


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 13:52:31 / helga

Hvert er heimurinn að fara????????????????????????

Þá er nú kominn nýr mánuður og er það nú ekki leiðinlegt.

1 maí í gær og svona og þá fórum við Unnur í sund svona í tilefni dagsins.

Við mættum í mega stemmingu í Salarlaug og voru alveg reddí að láta steikja okkur í pottinum. En nei nei þá var laugin bara troð full af fólki. Ég fann loksins skáp í búningsklefanum en þá tók smá tíma. Svo þegar maður var að fara í sturtu þá var biðröð. Veit ekki hvað var að gerast held bara að allir hafa hugsað það sama og skellt sér í sund.

En allaveganna þegar ég og unnur vorum búnar að vera smá tíma ofaní kemur ein KELLING ofaní stóra pottin og ég var ekki með gleraugun á mer þannig að ég sá hana ekki alveg skýrt en það eina sem ég sá var rauðar varir og bleikt bikíni. Svo kom blessaða konan aðeins nær og sjónin fór í fókus og ég gjörsamlega sprakk. Þetta var greinilega útlendingur hún var í bleiku púffí bikiníi ok það er svosem allt í lagi nema hvað það var SKÆRBELIKT og ekki var það það eina hún var með allan skartgripa kassann um hálsin. Þarna voru svona 5 risa gull hálsmenn og einnig var hún stífmáluð með rauðan varalit. Þá hélt ég að gamanið væri búið því ég og Unnur vorum búnar að hlæja nokkuð mikið af henni, en svo fórum við Unnur í annan pott og hættum að spá í þessa konu, þangað til að hún labbaði framhjá pottinum okkar og þá hélt ég að ég og Unnur myndum gjörsamlega drukkna þarna. Þá var hún í G-STEING sem var skærbleikur og með svona púffí dæmi á honum hehehehehehehehehehehe. Þá fór þetta nú alveg yfir stikið heyrði gamlar komur hneykslast um klæðaburðinn hennar og það vissu greinilega allir af henni hehehehehehe.

Já en þetta er ekki það eina furðulega sem ég sá í gær, ég og Unnur fórum í smá ís bíltúr og vorum að keyra framhjá 10-11 á móti Hressó þegar strákur um 25 labbaði fram hjá okkur og það eina sem ég og Unnur gátum hugsað var MAN BAG þá var þessi einstaklingur í hvítum þröngum buxum með þetta fína kvenmanns veski í stíl við buxurnar. Á þessu augnabliki var okkur nóg boðið svo við fórum bara heim að sofa.

Svo í dag fórum við Unnur vinkona mín á Bókasafn Kópavogs. Unni minni var farið að leiðast pínu á tímabili og skrifaði hún mér svaka sætt bréf sem hljóðaði nokkurn veginn svona :haha::haha:

Ég Unnur Sveinsdóttir sit hér á Bókasafni Kópavogs ásamt Helgu S. Sævarsdóttur. Markmið okkar er við sitjum hér er að efla þekkingu okkar í félags- og náttúruvísindum. En hvað málið varðar að efla þekkingu okkar fyrir lokaprófin er vægast sagt ófullnægjandi.

Við stöllur höfum engan áhuga á þessum efnum og hundleiðist okkur að þurfa að sitja hér.

En eitt er víst, við erum í góðra vina hópi!

Okkur vinkonum hefur nú gengið brösulega að komast í gegnum menntaskólann, og höfum við síðan í ágúst 2002 setið á menntaskólabekk. Og já! Síðan eru 5 ár!

En við erum viljasterkar og markmið okkar er að klára þetta helvíti!

Jæja ég læt þetta gott heita í bili. Vona að ég geti aukið þekkingu mína í náttúruvísindum í dag, sem ég reyndar stórefast um!

Með kærri kveðju, Unnur Sveinsdóttir.


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 22:55:41 / helga

húllum hæ

Jæja jæja jæja. Þá er að koma ný vika og er það síðasta skólavika fyrir sumarfrí. Þannig að það er allt að gerast.

Næsta helgi verður alveg massíf þá klára maður öll verkefnin og skilar öllu inn og þá hefjast skemmtilegir dagar í lærdóm þar sem prófin koma koll af kolli.

Já ég var áðan að fletta í gegnum myndirnar þegar ég var á Akureyri og við gamla gengið vorum allar saman. Var bara að spá í hvenær við hittumst allar aftur og förum á smá djamm.

 

En allaveganna þá er allt sæmilegt að frétta hérna hjá mér, var að passa í gær og var það mega fjör þar sem það er alltaf fjör hjá mér og Þórunni. Ég kenndi henni eitt dýra hljóð og var Asni fyrir valinu í þetta sinn, erum við búin að fara í gegnum beljuna, kisuna og hundinn. Enn ekki á ég heiðurinn á því öllu hehhe. En íííhhhaaaa er semsagt orð vikunnar. 

Heyrumst bara hress og kát seinna.


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 22:23:52 / helga

Sumar sumar sumar NEI!!


Það er sko ekki komið sumar. Ég vaknaði í morgun í þessi óendanlega góða skapi, var í svo miklum sumarfíling að ég var búin að ákveða að fara í sund kannski að skreppa í bíltúr og ég veit ekki hvað. EN þegar ég fór frammúr og leit út um gluggann hjá mér þá var þetta ógeðslega veður í Engihjallanum að ég hætti við allt saman og fór aftur að sofa.

Svona byrjaði dagurinn hjá mér. Ekkert smá hressandi verð ég að segja :haha::haha::haha::haha:

En hann lagaðist nú pínulítið, fór til Ömmu í kaffi og þar kom öll familían saman. Ég og Þórunn fórum reyndar í smá labbitúr en á leiðinni fengum við sól, él og rigningu. Mega fjör þar verð ég að segja.

En á Föstudaginn fór ég í afmæli hjá henni Guðrunu úr vinnunni og var það mega gaman. Það áttu allir að mæta í grímubúning og gerði ég það auðvitað hehehehe.

hér eru nokkrar myndir frá partýinu  

Ég, Gurra,Heiðrún og Steini 

 

Hulda og Raggi  

Guðrún afmælisbarn og Gummi  

 

Parlogis hópurinn mega flotti  

Þarna var hópurinn úr Parlogis og var það nú ekki verra.

Svo seinna fór ég í bæinn með henni Unni minni og skelltum við okkur á Hressó. Þar stoppuðum við í smá tíma og var ég svo keyrt heim og steinsofnaði ég hehehe.

Laugardagurinn var svona allt í lagi var þunn mest allan daginn var orðin hress um 7 leitið, sem var bara gott þar sem Lonni og Baldur og auðvitað Þórunn Emilía komu í mat hérna og var það ekki verra.

Þetta er svona það sem er að gerast hjá mér í augnablikinu, það styttist óðum í sólina og ekki er það verra það sem Ma og Pa eru allt of brún eftir Kanary. Verð að fara gera eitthvað í þessum málum.

En skólinn er á morgun og get ég ekki beðið!!!!!!!!!.

Segi bara yfir og út krakkar mínir og endileg Kommentið hérna hjá mér. Bara svona láta vita af ykkur.


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 21:33:24 / helga

gamlt og gott

jæjja jæja ég bara varð að deila þessu með ykkur.

ég var semsagt hjá henni ömmu minni og var að gramsa í dótinu sem afi átti og ekki fannst mér leiðinlegt að gramsa í þessu dóti sem er búið að vera lokað inní skáp í svona 50 ár hehehe.

 

þar fann ég fullt af skemmtulegu og sniðugu dóti meðal annars gamla ritvél alveg nokkuð flotta og svo fann ég þetta mega flotta útvarp sem afi átti en notaði aldrei. notaði ég þá tækifærið og  spurði ömmu hvort ég mætti ekki bara taka það, þar sem það var búið að vera inn í skáp í MJÖG LANGAN TÍMA. hún var bara fenginn að ég vildi taka það Því annars væri því hent.

ég hreinsaði rykið af því og Baldur setti það í samban og viti menn það virkar bara svona helvíti vel.

núna er það hérna á skrifborðinu mínu í gúddí fíling og get ég núna alltaf hlustað á útvarpið og í þessum fínu græjum.

 

þetta er semsagt gripurinn mikli

En það er ekki mikið annað að frétta af mér síðan síðast er bara heima að gera ekki neitt þar sem allt pakkið sem ég þekki er bara á víð og dreif um heiminn. En þá er ekki hægt að gera annað en að slaka bara á og hafa það næs.

Heyrums seinna bleeeeee.


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 21:28:36 / helga

Gleðilega Páska.

Jubbjubbbjubbb. Þá er kannski tími til að láta vita að ég er á lífi.

 

Það er voða lítið búið að gerast hjá mér, er bara ein heima. Ma og Pa eru á Kanarý þar sem mamma átti stór afmæli í gær 04.04. ekki leiðinlegur dagur og tóku þau þá ákvörðun að halda uppá þennan dag með stæl þannig að þau skelltu sér bara í sólina.

Núna fæ ég símtal á hverjum degi, og alltaf er verið að segja mér hvað það er gott verður og mikill hiti. MIG LANGAR Í SÓLINA!!! En ég er að fara eftir svona 2 mánuði múahahhaah  Ekki verra.

En ég var bara skilinn eftir en það er bara nokkur gott. Þar sem það er eingin að skipa mér fyrir hehe. Get hent öllu útum allt og eingin segir neitt. En það þíðir bara að ég þarft að taka meyra til þegar þau koma heim hehehe.

En um helgina fór ég í fermingu hjá Júlla litla bróðir Unnar. Þar var étið á sig gat.

Mega stuð alveg. Drengurinn fékk alveg fullt af kortum og nokkrar gjafir hehe. en það var nokkuð gaman að fá að fara í fermingu þar sem ég átti ekki að fara í neina þetta árið. Sem er kannski ágætt þar sem mér finnst ekki gaman að kaupa fermingargjafir hehehe.  

Já svo er ég bara í páskafríi er búin að vera að vinna eins og brjálæðingur. Þannig að það verður stuð næstu mánaðarmót hehe.

Svo fóru Unnur og Brynja til AK á þriðjudaginn og eru þar ennþá ég var ekki alveg að nenna að fara með þar sem ég átti að vera að vinna og Sissa er ekki á svæðinu. Þá sá ég bara engan tilgang til að fara

.AK gellurnar


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 13:56:03 / helga

frænku partý

Þá er þessi helgi búin. Ætlaði ég nú bara að taka hana rólega en nei nei það var ekki hægt                                                                                  .

Laugardagurinn var bara mjög góður, þar fór ég í frænku partý og var það alveg massíft. Ég mætti á staðinn og var þá hann frændi minn að byrja að elda þennan dýrindis mat sem við frænkurnar áttum eftir að HAKKA í okkur. Við fengum fylltar kjúklingabringur sem voru alveg óendanlega góðar og kartöflur fylltar með paprikuosti og papriku bitum og ég get svo svarið það þetta var æðislegt.

 

Svo var náttúrulega eftirréttur og var það súkkulaðikaka með mangókremi held ég en hún var alveg mögnuð líka.

Þannig að það var ekki hægt að kvarta undan hungri þarna.

Þegar þetta var allt búið og við frænkurnar komnar í góðan gír um 1 leitið ákvað ég á stinga af þar sem það var búið að bjóða mér í annað partý. Þetta var loka partý í kríuhólum hjá vinnufélögum mínu þeim Gumma og Hinrik.

Þetta var voða mikið fjör, mikið af fólki og fullt af tónlist og búsi.

Ég var nú ekkert að missa mig í því neitt. En þetta var alveg massa dagur.

Svo verð ég að þakka henni Unni fyrir að hafa hjálpað mér með ritgerð sem ég átti að vera búin að skila fyrir svona 3 vikum en kennarinn kippti sér ekkert upp við það að ég væri svona sein að skila þessu, því það voru allir aðrir að skila á sama tíma og ég hehehe ég hélt að ég væri orðinn allt of sein en nei nei.

Svo þegar ég kom í sögu í morgunn fékk ég áfall get ég sagt ykkur. Kennarinn bað mig um að koma og líta á ritgerðina og ég gerði það þá hefði ég bara sent byrjunina á ritgerðinni sem var bara eitthvað bull. Allt í villum og bara læti. Þá fékk ég fyrst fyrir hjartað. Það fyrsta sem ég hugsaði var að núna væri ritgerðin horfiðn og öll vinnan sem Unnur og ég lögðum í hana í gær væri farin beint í ruslið. En þá reyndi ég að róa mig aðeins og fór svona að leita útum allt og viti menn ég fann ritgerðina, hún var bara ekki á réttum stað í tölvunni og þá get ég andað léttar hehehe. Ekki gott að fá svona áfall svona snemma morguns :haha::haha:

ætlaði nú bara að hafa þetta stutt en það virkaði ekki hehehehe

síja


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Dagsetning
10. febrúar 2012
Stokkhólmur BAby
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1577 dögum
Dagsetning
10. febrúar 2012